Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

12/01/2011
Síðasti stjórnarfundur og fundur með vegagerðinni

Síðasti fundur stjórnar LLÍ fór fram síðastliðinn 1. nóvember og voru þar ýmis mál rædd. Stjórnin hafði farið á fund með Hrein Haraldssyni vegamálastjóra, Gunnari Gunnarssyni aðstoðarvegamálastjóra og Stefáni Erlendssyni, lögfræðingi. Stjórnin óskaði eftir þessum fundi til að ræða samskipti Vegagerðarinnar og landeigenda. Gekk fundurinn vel og vegagerðarmenn tóku vel í að senda LLÍ yfirfarnar verklagsreglur sínar um samskipti við landeigendur til umsagnar. Rædd voru ákvæði í gildandi vegalögum um að Vegagerðin sé lögformlegur eigandi að því landi sem undir veg fer og það að þessi svæði séu komin með sérstök fasteignanúmer. Það er að mati stjórnar LLÍ, óheppilegt og vekur upp margar spurningar og álitaefni. Stjórn LLÍ telur að eigi þetta fyrirkomulag að vera til frambúðar þurfi að skýra réttarfarslega stöðu viðkomandi landsvæða og hvaða áhrif það hafi á þær jarðir sem áður áttu landið og hvað gerist ef vegi er svo breytt síðar. Einnig var rætt um bætur vegna lands sem tekið er eignarnámi vegna vinnu Vegagerðarinnar og um mikilvægi þess að fengið sé hlutlaust mat ef samkomulag næst ekki á milli Vegagerðar og landeigenda og það að hugsanlega þyrfti að einfalda og stytta þannig það ferli.

Skorað var á forustumenn Vegagerðarinnar að hafa samráð við landeigendur með góðum fyrirvara, þegar framkvæmdir eru fyrirhugaðar svolandeigendur upplifi ekki að þeir séu sniðgengnir.
Á fundinum lýstu stjórnarmenn yfir vonbrigðum sínum með úrskurð Óbyggðanefndar á Tröllaskaga þar sem sérstaklega kom til tals sú undrun að enn séu afmarkaðar landspildur gerðar að þjóðlendum. Þetta þykir stjórnarmönnum LLÍ ekki samræmast upphaflegum markmiðum laganna eins og þau voru kynnt í upphafi. Enda voru einnig á fundinum ræddar breytingar á Þjóðlendulögunum en það mál hefur oft áður komið til tals hjá stjórninni. Hefur stjórnin ákveðið að fela Sigurði Jónssyni, lögmanni, að semja uppkast að frumvarpi um slíkar breytingar svo hægt væri að leggja mótaðar hugmyndir fyrir þingmenn.

Formaður hafði fengið fregnir af því að hafin sé vinna við ný landgræðslulög en ekki hefur verið leitað til LLÍ vegna þess en stjórnin mun fylgjast með því máli enda telur hún eðlilegt að LLÍ komi að þeirri vinnu. Formaður kynnti einnig bréf frá Landeigendafélagi Álftaness, þar sem sótt er um fjárstuðning vegna málaferla fyrir Mannréttindadómstólinum. Samþykkt var að veita þeim 300.000 króna styrk sem greiddur verður að málaferlunum loknum.

Ýmis önnur mál voru rædd en lesa má fundargerð stjórnarfundarins undir stjórn - fundargerðir hér til vinstri.



Til baka