Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

12/21/2007
Ekki náðist að leggja fram breytingu á þjóðlendulögunum á haustþingi
Eins og komið hefur fram í fundargerðum stjórnar LLÍ sömdu Ragnar Aðalsteinsson og Ólafur Björnsson tillögu að breytingu á þjóðlendulögunum fyrir stjórn LLÍ. Meðal annars felst í breytingunni að jörð með athugasemdarlaust þinglýst landamerkjabréf sé eignarland og þeir sem haldi öðru fram hafi sönnunarbyrðina fyrir því. Ætlunin hjá stjórninni var að reyna að koma frumvarpinu fram á haustþingi. Erfitt hefur verið að fá ákveðin svör frá þingmönnum hvort þeir séu tilbúnir að styðja frumvarpið þannig að ekki verður það lagt fram fyrr en á vorþingi. Ætlunin var að hér væri um þingmannafrumvarp að ræða og helst einstaklingar úr öllum flokkum sem kæmu að því.

Fyrir hönd stjórnarinnar óska ég öllum félagsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla með von um að komandi ár verði samtökunum heilladrjúgt.

Guðný Sverrisdóttir, formaður



Til baka