|
Frestur til 31. desember til að lýsa kröfum á svæði 7
Sveitarstjórnum á svæði 7, þ.e. á svæðinu frá Fnjóská að Blöndu hefur borist bréf frá óbyggðanefnd dags. 26. nóvember 2007 þess efnis að fjármálaráðherra f.h. íslenska ríkisins hafi frest til 31. desember nk. til að lýsa kröfum í hugsanlegar þjóðlendur á svæðinu.
Þegar kröfur fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins koma fram mun óbyggðanefnd, sem er óháður úrskurðaraðili í málum birta tilkynningu í Lögbirtingarblaðinu og fjölmiðlum. Í tilkynningunni verður skorað á þá sem telja sig eiga eignarétt á því svæði sem ríkið gerir kröfu til, að lýsa kröfum sínum fyrir óbyggðanefnd innan tiltekins tíma. Tilkynningunni verður þinglýst á fasteignir á svæðinu. Óbyggðanefnd mun að auki kynna kröfugerð fjármálaráðherra sérstaklega fyrir viðkomandi sveitarfélögum og sýslumönnum og birta hana á heimasíðunni óbyggdanefnd.is
Til baka
|