Fundargerð
24. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn fimmtudaginn 9. sept. 2010 í Bændahöllinni og hófst kl. 13:00.
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Sigurður Jónsson, Gunnar Sæmundsson og Óðinn Sigþórsson. Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Starfið framundan í vetur.
3. Hvernig komum við samtökunun betur á framfæri? Atli Rúnar Halldórsson kemur á fundinn.
4. Stjórnlagaþing, formaður og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna koma á fundinn.
5. Önnur mál er félagið varðar.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin hafði verið send út. Athugasemdir höfðu ekki borist og var samþykkt samhljóða.
2. Starfið framundan í vetur.
Rætt var frekar um nauðsyn þess að fá skýrari endurupptöku rétt í þjóðlendulögin. Formaður, Óðinn og Sigurður, tóku að sér að undirbúa málið frekar. Þá var rætt um hin ýmsu mál sem á döfinni eru.
3. Hvernig komum við samtökunun betur á framfæri? Atli Rúnar Halldórsson kemur á fundinn.
Atli Rúnar Halldórsson kom á fundinn. Formaður fór yfir nauðsyn þess að koma samtökunum vel á framfæri, bæði gagnvart landeigendum og almenningi. Eftir ýtarlegar umræður var ákveðið að gefa út fjórblöðung sem kæmi út með Bændablaðinu 18. nóv. nk. Atli Rúnar tekur að sér að ritstýra blaðinu.
4. Stjórnlagaþing, formaður og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna koma á fundinn.
Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, og Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri, BÍ komu á fundinn. Rætt var um væntanlegt Stjórnlagaþing. Ákveðið var að Bændasamtök Íslands, Landssamtök landeigenda og hugsanlega Landsamband veiðifélaga undirbúi aðkomu þessara samtaka að Stjórnlagaþinginu.
Þá var rætt um nefndarskipun umhverfisráðherra um, vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Haraldur reifaði hugmynd um að BÍ og LLÍ skipi sinn eigin hóp til að fara yfir þessi mál. Samþykkt var að stofna slíkan hóp. Samþykkt var að Óðinn verði í þeim hóp en Örn fari í hópinn sem undirbúi Stjórnlagaþingið.
5. Önnur mál er félagið varðar.
Sigurður vakti athygli á því fargani sem er í alls konar leyfum, allt sé orðið leyfisskylt, líka í eignarlöndum. Sumt af þessu virðist algjörlega óþarft og mjög oft til tafa og trafala.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson |