Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
23. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn þriðjudaginn 22.júní 2010 í Bændahöllinni og hófst kl. 13:00.


Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Sigurður Jónsson, Gunnar Sæmundsson og Óðinn Sigþórsson. Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.

Dagskrá:
    1. Fundargerð síðasta fundar.
    2. Vatnalög.
    3. Lög um náttúruvernd.
    4. Orkustefna.
    5. Endurskoðun jarðalaga.
    6. Önnur mál er félagið varðar.
    1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin hafði verið send út, engar athugasemdir höfðu borist og var hún samþykkt samhljóða.
    2. Vatnalög.
Óðinn og Sigurður höfðu mætt á fund Iðnaðarnefndar Alþingis og gerðu þeir nefndarmönnum rækilega grein fyrir afstöðu LLÍ til málsins. Niðurstaða varð svo sú að Alþingi frestaði gildistöku laganna um eitt ár. Jafnframt var lögmönnunum, Karli Axelssyni og Ástráði Haraldssyni falið að fara yfir málið. Stjórnarmenn ræddu málið og nauðsyn þess að halda vöku sinni.
    3. Lög um náttúruvernd.
Verið er að endurskoða lög um náttúruvernd. LLÍ hefur verið boðið að senda fulltrúa til þeirrar nefndar sem fjallar um málið. Hluti stjórnar mun mæta þangað síðar í dag.
    4. Orkustefna.
Fyrir liggja drög að Orkustefnu fyrir Ísland. Ákveðið var að stjórnarmenn skoði drögin, en Guðný og Óðinn skoði þetta sérstaklega. Stjórnin fjalli svo frekar um þetta síðar.
    5. Endurskoðun jarðalaga.
Vinnuhópur sá sem nú vinnur að endurskoðun jarða- og ábúðarlaga hefur sent beiðni um að fulltrúar LLÍ mæti á fund næstkomandi fimmtudag, 24. júní. Stjórnarmenn ræddu málið og komu sér saman um helstu áhersluatriði. Örn og Sigurður munu mæta og hugsanlega Óðinn.
    6. Önnur mál er félagið varðar.
Engin önnur mál komu fram, en stefnt á fund í ágúst.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson