|
|
Fundargerð 21. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn mánudaginn 11. febrúar 2010 í Bændahöllinni og hófst kl. 10:00.
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Ólafur H. Jónsson Gunnar Sæmundsson og Óðinn Sigþórsson.
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Aðalfundur.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerð síðasta fundar samþykkt samhljóða.
2. Aðalfundur.
Aðalfundur LLÍ verður haldinn kl. 13:00. í dag. Guðný lagði fram ársreikning samtakanna fyrir árið 2009. Hagnaður ársins er kr. 1.450.072. Eignir samtals kr. 2.187.549.
Skoðunarmenn ársreiknings þeir Snorri H. Jóhannesson og Jóhannes Kristjánsson hafa yfirfarið reikningana og undirritað þá. Að því búnu undirritaði stjórnin reikningana.
Formaður greindi frá því að Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra hefði boðað forföll og kæmi því ekki með framsöguerindi. Í hans stað kæmi Þorsteinn Magnússon lögfræðingur í Fjármálaráðuneytinu og flytti erindi.
Farið var yfir framkvæmd komandi fundar.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson |
|

|