Fundargerð
20. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn mánudaginn 11. janúar 2010 í Bændahöllinni og hófst kl. 13:00
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson, Óðinn Sigþórsson boðaði forföll
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Undirbúningur aðalfundar.
3. Önnur mál er félagið varðar.
4. Heimsókn í Árnastofnun kl. 15:00.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin hafði verið send út, engar athugasemdir höfðu borist og var hún því samþykkt.
2. Undirbúningur aðalfundar.
Aðalfundurinn verður haldinn 11. febrúar nk. og hefst kl. 13:00 og var formanni falið að leita til Hótel Sögu um fundaraðstöðu.
Formaður greindi frá fundi sem hann og Hrafnkell Karlsson bóndi á Hrauni höfðu átt um morguninn með Eiríki Tómassyni lagaprófessor. Áttu þeir gagnlegan fund með Eiríki. Formaður reifaði þann möguleika að skjóta þjóðlendumálum til Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Stjórnarmenn ræddu þetta og samþykktu að fela formanni að ræða við Ólaf Björnsson og Ragnar Aðalsteinsson og fá þeirra álit.
Ekki hefur komið svar frá Steingrími Sigfússyni, fjármálaráðherra, um það hvort hann gæti orðið framsögumaður á aðalfundinum.
Samþykkt var að leita til Ólafs Björnssonar um að flytja framsögu á aðalfundinum um stöðu þjóðlendumála í dag.
Fleiri hugmyndir komu fram um frummælendur og umræðuefni. Formanni falið að kanna þessi atriði.
Samþykkt var að fundarstjórar verði Óðinn Sigþórsson og Guðný Sverrisdóttir. Leitað verði til Tjörva Bjarnasonar um að skrifa fundargerð.
Samþykkt var að leita til Atla Rúnars Haldórssonar um að vera á aðalfundinum til að taka saman fréttir af honum til að koma á framfæri.
3. Önnur mál er félagið varðar.
Ólafur kynnti þá vinnu sem eigendur Reykjahlíðar hafa unnið vegna deilna um landamerki og málatilbúnað vegna þjóðlendumála. Um er að ræða vandaðar loftmyndir af svæðinu. Fundarmönnum fannst þetta mjög athyglisvert og til eftirbreytni sem þyrfti að kynna betur.
4. Heimsókn í Árnastofnun.
Í Heimsókn í Árnastofnun fóru, Örn, Guðný og Ólafur. Þar tók Einar G. Pétursson á móti þeim. Kynti hann nokkuð stofnunina og síðan var rætt við hann. Fram kom hjá honum að Óbyggðanefnd hefði ekki leitað eftir gögnum hjá Árnastofnun sem varðað gætu þjóðlendumálin. Einar áætlar að 8000 skjöl séu enn órannsökuð í Árnastofnun og líklega svipað magn í Landsbókasafninu. Eins sagði hann að ekki hefði heldur verið leitað eftir gögnum í Landsbókasafni. Einar taldi að í þessum söfnum væri töluvert af skjölum sem að gagni gætu komið. Mjög fróðlegt var að fara yfir málin með Einari. (Ritað eftir frásögn formanns.)
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson. |