Fundargerð
17. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn föstudaginn 24. apríl 2009 í Bændahöllinni og hófst kl. 10:00
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Óðinn Sigþórsson, Hrafnkell Karlsson varamaður Ólafs H. Jónssonar og Gunnar Sæmundsson.
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Starfsaðstaða fyrir LLÍ.
3. Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður kemur á fundinn.
4. Önnur mál.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.
2. Starfsaðstaða fyrir LLÍ.
Beiðni LLÍ til Landssambands veiðifélaga um aðstöðu fyrir LLÍ hjá þeim var hafnað og bent á að eðlilegra væri að leita til BÍ þar sem LV væri með leigusamning hjá BÍ.
Stjórnarmenn ræddu um starfsaðstöðu og framtíð LLÍ í ljósi breytinga á samþykktum samtakanna.
Guðný taldi að nú þyrftum við að fara í mikla ímyndarvinnu og benti á ýmsa hluti og hugsanlega þyrftum við að leita til kunnáttumanna að hjálpa okkur.
Óðinn sagði þetta átaksverkefni sem verður að fara í á komandi hausti.
Rætt var um að fá ,,kálf” í Bændablaði og leita eftir nánu samstarfi við BÍ. Skrifa þyrfti greinar í blöð o.fl.
Gunnar benti á að stjórnarmenn skiptu með sér verkum í þessum málum.
Stjórnin var sammála um að taka þyrfti verkefnið föstum tökum á komandi hausti. Ekki væri ástæða til að huga að sérstakri aðstöðu að svo komnu máli.
3. Karl Axelsson mætti á fundinn.
Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður mætti á fundinn. Formaður reifaði málið og leitaði eftir því við Karl hvort hann gæti aðstoðað samtökin, t.d. við ákveðna málaflokka. Nefndi m.a. endurskoðun á einstökum lögum, s.s. lögum um eignarnám.
Óðinn tók undir þetta og lagði áherslu á að það væri mikilsvert að fá KA, sem talsmann í svona málum. Þá væri mikilvægt að LLÍ gæti bent félagsmönnum sínum á hæfan lögfræðing ef upp kæmu eignarréttarmál.
Guðný benti á að vissulega væru samtökin með þröngan fjárhag en tók undir nauðsyn þess að fá KA til að liðsinna okkur.
Karl lýsti áhuga á að koma LLÍ til aðstoðar, en tók fram að hann kæmi ekki að neinum málum er varða þjóðlendumál, þar sem hann situr í Óbyggðanefnd.
Samþykkt var að fela formanni og varaformanni að gera uppkast að rammasamning við Karl Axelsson sem síðan yrði sendur til annarra stjórnarmanna til skoðunar.
Formaður greindi frá því að ekki hefði fengist viðtal við fjármálaráðherra en því yrði fylgt eftir þegar ný ríkisstjórn hefði verið mynduð.Fleira ekki takið fyrir.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson. |