Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
16. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn föstudaginn 20. mars 2009 í Bændahöllinni og hófst kl. 13:00

Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Óðinn Sigþórsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson.
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.

Dagskrá:
      1. Fundargerð síðasta fundar.
      2. Stjórn skipti með sér verkum.
      3. Ferðakostnaður og dagpeningar stjórnar.
      4. Starfið framundan í ljósi breyttra samþykkta LLÍ.
      5. Önnur mál.
      1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin samþykkt.
      2. Stjórnin skipti með sér verkum.
Tillaga kom fram um eftirfarandi, eftir að Ólafur H. hafði óskað eftir að vera laus við að vera gjaldkeri:
Varaformaður. Óðinn Sigþórsson.
Gjaldkeri. Guðný Sverrisdóttir.
Ritari. Gunnar Sæmundsson.
Meðstjórnandi. Ólafur H. Jónsson.
Þetta samþykkt.
      3. Ferðakostnaður og dagpeningar stjórnar.
Fyrir akstur verði greitt samkv. taxta ferðakostnaðarnefndar. Taxti er nú kr. 92 á ekinn km.
Fyrir hvern fund verði greiddir dagpeningar miðað við fæði í heilan dag. Nú er þessi greiðsla kr. 7.200 á dag. Þessar greiðslur taka breytingum samkv. ákvörðun ferðakostnaðarnefndar á hverjum tíma. Formanni verða greiddir dagpeningar fyrir tvo daga á mánuði fyrir sína vinnu sem formaður.
      4. Starfið framundan.
Samþykkt var að leita eftir samstarfi við Landssamband Veiðifélaga um skrifstofuaðstöðu og starfsmann.
Samþykkt var að óska eftir fundi með fjármálaráðherra hið fyrsta til að ræða stöðu þjóðlendumála og áfrýjun ríkisins vegana Bleiksmýrardals.
Samþykkt var að reyna að fá Karl Axelsson lögfræðing á næsta stjórnarfund til að ræða ýmis mál er varða eignarrétt landeigenda gagnvart ýmsum opinberum aðilum.
      5. Önnur mál.
Samþykkt var að stefna að því að halda stjórnarfund þar sem allir varamenn stjórnar mæti til að fara yfir helstu mál samtakanna. Fundur þessi verði ekki haldinn síðar en á komandi hausti.
Stefnt verði að því að halda einn stjórnarfund í apríl, dagsetning ákveðin síðar.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson