Fundargerð
14. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn föstudaginn 28. nóvember 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 13.00
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, varaformaður, Óðinn Sigþórsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson, varamaður Rögnvaldar Ólafssonar.
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Fundargerð síðasta fundar.
Fjármál samtakanna.
Undirbúningur aðalfundar.
Bréf forsætisráðherra vegna málskostnaðar í þjólendumálum.
Næstu svæði hjá Óbyggðanefnd.
Önnur mál.
Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.
2. Fjármál samtakanna.
Ólafur gerði grein fyrir fjárhag samtakanna. Staðan er þokkaleg. Búið er að greiða reikning er borist hafði frá Ólafi Björnssyni lögfræðingi vegna vinnu fyrir samtökin. Nokkrar umræður spunnust um það mál og nauðsyn þess að ganga betur, fyrirfram, frá slíkum málum í framtíðinni. Rætt var um uppgjör við stjórnarmenn vegna aksturs og dagpeninga. Uppgjör verður samkv. ákvörðun á 11. stjórnarfundi er haldinn var 23. júní sl. Erni var falið að ganga frá uppgjöri við Ólaf vegna starfa sem gjaldkeri.
3. Undirbúningur aðalfundar.
Samþykkt var að stefna á aðalfund 20. febrúar 2009 kl. 16.00 og að fundurinn verði haldinn í Reykjavík. Örn tók að sér að kanna möguleika hjá Hótel Sögu.
Samþykkt var að leggja fram tillögu að breytingum á samþykktum LLÍ, 2. gr. um tilgang samtakanna, á þann veg að LLÍ gæti hagsmuna félagsmanna og aðildarfélaga gagnvart opinberum aðilum og stofnunum. Drög, er Gunnar Sæmundsson hafði samið, voru rædd og ákveðið að skoða þau frekar. Fullmótuð tillaga verður rædd á næsta stjórnarfundi sem stefnt er að þann 30. janúar 2009.
4. Bréf forsætisráðherra dags. 21. okt. 2008 vegna málskostnaðar í þjóðlendumálum.
Formaður kynnti bréfið. Fram kom að eigendur Reykjahlíðar hafa vísað ágreiningi um greiðslu málskostnaðar til Umboðsmanns Alþingis. Stjórnin styður þá málsmeðferð.
5. Næstu svæði hjá Óbyggðanefnd.
Formaður lagði fram bréf dags. 3.nóv. 2008 um næstu svæði sem Óbyggðanefnd tekur fyrir. Þar kemur fram að næst verður tekið fyrir svæði 7 norður (einnig nefnt svæði 7 b). Kröfufrestur fjármálaráðherra rennur þar út 31. janúar 2009.
Svæði 8 hefur verið skipt í tvennt (norður og vestur), nánar tiltekið um mörk Húnavatnssýslu og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Stefnt er að því að nyrðri hlutinn verði til umfjöllunar á næsta ári. Nánari tímasetningar munu liggja fyrir í byrjun næsta árs.
Í þessu sambandi bendir stjórn LLÍ landeigendum á þessum svæðum að kanna fyrirfram hvernig verði með greiðslur frá Óbyggðanefnd fyrir vinnu sem fallið hefur til og mun falla til vegna gagnaöflunar heimaaðila.
6. Önnur mál.
Stjórnin fagnar niðurstöðu um eignarnám í landi Reykjahlíðar í Mývatnssveit vegna Dettifossvegar. Þessi niðurstaða undirstrikar nauðsyn þess að landeigendur séu vel á verði t.d. þagar Vegagerðin leggur vegi um lönd manna.
Stjórnin telur nauðsynlegt að koma þessum úrskurði inn á heimasíðu LLÍ ásamt bréfi forsætisráðherra og bréfi Óbyggðanefndar um ný svæði.
Formaður kynnti bréf frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, dags. 6. nóv. 2008. Þar kemur fram fyrirheit um fjárstyrk á árinu 2009 vegna málarekstrar fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið
Gunnar Sæmundsson.
|