Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð

13. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn fimmtudaginn 16. október 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 14:30.

Formaður stjórnaði fundi og Guðný skrifaði fundargerð

Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Óðinn Sigþórsson og Ólafur H. Jónsson. Einnig sátu lögmennirnir Ólafur Björnsson hrl., Torfi Ragnar Sigurðsson hdl., og Ragnar Aðalsteinsson hrl. fundinn.

Dagskrá:
      Fundargerð síðasta fundar.
      Mál Fjalls í Öræfum fyrir MDE.
        Fundargerð síðasta fundar samþykkt athugasemdalaust.
        Svar hefur borist frá Mannréttindadómstóli Evrópu varðandi Fjall í Öræfum.

Fyrstur tók til máls Ólafur Björnsson hrl. Hann fór yfir málareksturinn í heild sinni. Lýsti stöðu mála fyrir MDE.

Þá tók til máls Torfi Ragnar Sigurðsson hdl. Hann fór yfir niðurstöðu MDE í máli Fjalls í Öræfum. Reifaði hann þar helstu málavexti, málsástæður og niðurstöðu.

Helsta niðurstaða þessa máls var á þá leið að dómstóllinn taldi að mál þetta væri ekki tækt til efnislegrar meðferðar dómstólsins. Meginástæða þess var sú að dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um að ræða eign málskotsaðila í skilningi 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við Mannréttindasáttmála Evrópu. Af þeim sökum var málinu vísað frá dómnum þar sem það þótti ekki njóta verndar framangreinds ákvæðis.

Því næst tók Ragnar Aðalsteinsson hrl. til máls. Hann fór yfir málið í heild sinni og gerði grein fyrir sínum sjónarmiðum.

Var það samdóma álit lögmanna að mál þetta hefði takmarkað fordæmisgildi fyrir önnur mál sem nú eru rekin fyrir dómstólnum. Þar sem niðurstaða MDE var á þá leið að í því tiltekna máli sem nú var kveðinn upp úrskurður um væri ekki um að ræða eignarréttarlega hagsmuni sem gætu talist vera eign í skilningi MSE.

Alls hafa fjögur mál vegna þjóðlendulaganna verið kærð til dómstólsins og er enn beðið niðurstöðu þriggja þeirra.

Stjórn landssamtakanna óskaði eftir að fá skriflega greinargerð frá lögmönnum um úrskurðinn.