|
|
Fundargerð
12. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn
mánudaginn 3. sept. 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 15:30.
Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, varaformaður, Óðinn Sigþórsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson, varamaður Rögnvaldar Ólafssonar.
Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Afturköllun á kröfum á svæði 7.
3. Fjármögnun á málum fyrir Mannréttindadómstólnum.
4. Framtíð samtakanna.
5. Mismunandi gjaldskrá Vegagerðarinar.
6. Málskostnaður landeigenda fyrir Óbyggðanefnd.
7. Bréf frá Svani Einarssyni, Tungufelli.
8. Önnur mál.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerð síðasta fundar samþykkt athugasemdalaust.
2. Afturköllun á kröfum á svæði 7.
Til fundarins var mættur Friðbjörn Garðarsson lögfræðingur. Hann fór rækilega yfir stöðu mála á svæði 7. Ríkið hefur dregið til baka mjög mikið af kröfum sínum í land jarða með þinglýst landamerki, en þó eru uppi deilur um hvar eignarland endar þegar inn á hálendið kemur. Stjórnarmenn lýstu ánægju sinni með að ríkið drægi úr kröfum sínum. Þetta m.a. undirstrikar árangur af starfi LLÍ. Óðinn tók að sér að semja ályktun um málið.
3. Fjármögnun á málum fyrir Mannréttindadómstólnum.
Formaður fór yfir stöðu mála. Ekki hefur komið svar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hugsanlegan fjárstuðning. Beðið er næsta stjórnarfundar þess. Stjórnarmenn trúa því tæpast að sveitarfélög vilji ekki leggja neinn stuðning fram.
4. Framtíð samtakanna.
Talsvert rætt um framtíð samtakanna og hvort taka eigi á fleiri réttindamálum landeigenda en þjóðlendumálunum einum. Stjórnin var sammála um að huga eigi að því, en einnig komi til greina að samtökin verði leyst upp þegar þjóðlendumálum er lokið. Ákveðið að fyrir næsta stjórnarfund verði unnin drög að lagabreytingum er lúti að útvíkkun á starfi samtakanna og málin þá skoðuð nánar. Ljóst er að þetta verður að ræða rækilega á næsta aðalfundi.
5. Mismunandi gjaldskrá Vegagerðarinnar
Ólafur H. Jónsson fór yfir málið. Verulegur mismunur er á bótum Vegagerðarinnar fyrir land undir vegi og efnistöku, eftir því hvar á landinu er. Ólafur tók að sér að semja drög að ályktun um málið.
Einnig var nokkuð rætt um það þegar raflínur, símastrengir og ljósleiðarar eru lagðir um lönd manna bótalaust, en landeigandi síðan gerður bótaskyldur ef viðkomandi strengir verða fyrir hnjaski.
6. Málskostnaður landeigenda fyrir Óbyggðanefnd
Formaður lagði fram drög að bréfi frá samtökunum til forsætisráðherra. Fundarmenn lýstu ánægju sinni með drögin.
7. Bréf frá Svani Einarssyni, Tungufelli.
Samþykkt að Guðný geri uppkast að svarbréfi.
8. Önnur mál.
Óðinn fór yfir stöðu mála er varða vatnalögin og frestun á gildistöku nýrra laga. Fundarmenn lýstu undrun og óánægju sinni með það ef nýju lögin tækju ekki gildi. Ákveðið var að stjórnarmenn, hver og einn, kæmu þessum sjónarmiðum á framfæri, einnig var Óðinn beðinn að semja drög að ályktun um málið, sem tekin yrði afstaða til á næsta stjórnarfundi.
Ákveðið var að stefna á næsta stjórnarfund seint í október.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson |
|

|