Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð

11. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn mánudaginn 23. júní 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 13:00.

Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, varaformaður, Óðinn Sigþórsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson varamaður Rögnvaldar Ólafssonar.

Dagskrá:
      Úrskurður Óbyggðanefndar á svæði 6.
      Afréttarmál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, fjármögnun.
      Starfið framundan.
      Önnur mál.

      Úrskurður Óbyggðanefndar á svæði 6.
Ólafur Björnsson lögfræðingur mætti á fundinn. Hann fór yfir úrskurðinn og skýrði helstu atriði og svaraði spurningum stjórnarmanna. Fram kom að eigendur Reykjahlíðar munu ekki una niðurstöðum Óbyggðanefndar.
Miðað við þennan úrskurð virðist stjórnarmönnum að kröfur fjármálráðherra fyrir hönd ríkisins á svæði 7 séu fráleitar. Stjórnin samþykkti að skora á fjármálaráðherra að endurskoða kröfugerðina á svæði 7. Formanni falið að koma þessu til skila.
Fram kom hjá Ólafi Björnssyni að Óbyggðanefnd hefur í úrskurði sínum á svæði 6, jafnframt úrskurðað málskostnað landeigenda og er hann um 40 til 60% af raunkostnaði. Stjórnin taldi þessa niðurstöðu algjörlega óviðunandi og skorar á fjármálaráðherra að beita sér fyrir því að þetta verði leiðrétt. Formanni falið að koma því til skila. Ólafur H. greindi frá því að fáist ekki leiðrétting munu eigendur Reykjahlíðar leita álits Umboðsmanns Alþingis um málið.
    Afréttarmál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, fjármögnun.
Búið er að vísa til Mannréttindadómstóls Evrópu máli vegna afréttarlandsins Almenninga í fyrrum Vestur - Eyjafjallahreppi, sem dæmt hefur verið Þjóðlenda. Núþegar er orðinn umtalsverður kostnaður vegna málsins og leitað hefur verið LLÍ. Fram kom hjá formanni að Rangárþing eystra hefur lagt fram eina milljón kr. LLÍ hefur lofað 500 þús. kr. Bændasamtök Íslands 1. milljón og von er til þess að Kirkjusjóður komi með 500 þús. kr. Samþykkt var að ýta á Samtök sveitarfélaga að leggja peninga í málið. Formanni og varaformanni var falið að ganga á eftir svörum.
    Starfið framundan.
Stefnt á stjórnarfund seint í ágúst. Á þeim fundi verði rætt um hlutverk samtakanna til lengri tíma og hvort taka eigi upp víðtækari hagsmunagæslu fyrir landeigendur.
    Önnur mál.
Guðný lagði fram tillögu um greiðslu til stjórnarmanna. Akstur verði greiddur samkvæmt ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar hverju sinni. Fyrir hvern stjórnarfund verði greiddir dagpeningar sem svara til 10 tíma ferðalags, samkvæmt ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar. Þetta samþykkt.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson