Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
10. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn fimmtudaginn 3. apríl 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 10:10

Fundinn sátu Örn Bergsson, formaður, Guðný Sverrisdóttir, Rögnvaldur Ólafsson, Óðinn Sigþórsson og Ólafur H. Jónsson.

Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Afréttarmál fyrir Mannréttindadómstólinn.
3. Frumvarp til laga um frístundabyggð.
4. Kröfur fjármálaráðherra á svæði 7.
5. Greiðsla stjórnarmanna fyrir útlögðum kostnaði.
6. Fundur með fjármálaráðherra 16. apríl.
7. Starfið framundan.
8. Ályktun Búnaðarþings um ræktunarland.
9. Önnur mál er félagið varðar.


1) Fundargerð síðasta fundar. Fundargerð 9. fundar samþykkt athugasemdalaust.

2) Afréttarmál fyrir Mannréttindadómstólinn. Dómsmáli um Almenninga norðan Þórsmerkur verður skotið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Kostnaður er áætlaður 3-5 milljónir og talsvert vantar upp á að endar nái saman. Samþykkt að leggja kr. 500.000,- frá Landssamtökunum í þetta verkefni.

3) Frumvarp til laga um frístundabyggð. Óðinn tók saman athugasemdir fyrir félagið sem verða sendar félags- og tryggingamálanefnd Alþingis.

4) Kröfur fjármálaráðherra á svæði 7. Friðbjörn Garðarsson mætti á fundinn og fór yfir kröfur ríkisins á svæði 7a en svæði 7 var skipt í a og b, en ekki eru komnar fram kröfur á svæði 7b. Friðbjörn fór yfir kröfugerðina og sagði að hún væri misvísandi og væri lítil breyting á kröfugerð á svæði 7a frá fyrri svæðum. Rögnvaldur fór yfir kröfugerðina frá austri til vesturs og var stjórnin sammála um að kröfugerðin væri vonbrigði, sérstaklega í Eyjafirði þar sem víða er gerð krafa um þinglýst eignarland.

5) Greiðsla stjórnarmanna fyrir útlögðum kostnaði. Stjórnarmenn fá greiddan útlagðan kostnað vegna funda. Ólafi og Guðnýju falið að móta tillögur um greiðslu til formanns fyrir hans vinnu.

6) Fundur með fjármálaráðherra. Búið er að panta tíma hjá fjármálaráðherra 16. apríl nk. kl. 10:00. Stjórnin mætir öll ef hægt er.

7) Starfið framundan. Örn og Guðný koma til með að skipuleggja fundi á næstu vikum. Rætt um hvort útvíkka eigi starfsemi félagsins. Stjórnarmenn voru sammála um að samtökin eigi að gæta hagsmuna landeigenda gagnvart opinberum aðilum og lagasetningu Alþingis. Einnig var rætt um að samtökin þyrftu að vera sýnilegri út á við. Erni falið að hafa samband við Atla Rúnar hjá Athygli um að útbúa fréttatilkynningu um kröfu ríkisins á svæði 7a.

8) Ályktun Búnaðarþings um ræktunarland. Fjallar hún um hvort varðveita eigi allt ræktanlegt land á Íslandi til landbúnaðar. Samtökin munu ekki sækjast eftir setu í starfshópi sem verður skipaður vegna þessa máls en mun að sjálfsögðu fjalla um þetta stórmál þegar þar að kemur.

9) Önnur mál er félagið varðar. Samþykkt að kaupa að minnsta kosti 1 eintak af kandidatsritgerð um þjóðlendumál eftir Þorstein Magnússon.


Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.
Rögnvaldur Ólafsson, fundarritari.