|
|
Fundargerð
9. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) hinn 22. febrúar, 2008.
Fundurinn var símafundur. Eftirtaldir stjórnarmenn voru mættir: Örn Bergsson nýkjörinn formaður LLÍ, Guðný Sverrisdóttir, Ólafur H. Jónsson og Óðinn Sigþórsson.
Formaður setti fund og gerði uppástungu um Óðin Sigþórsson sem ritara og var það samþykkt.
Eftirfarandi mál voru tekin fyrir:
1. Stjórn skipti með sér verkum. Guðný Sverrisdóttir var kosin varaformaður. Ólafur H. Jónsson var kosinn gjaldkeri og Rögnvaldur Ólafsson var kosinn ritari.
2. Landssamtökunum hefur borist til umsagnar frumvarp um frístundabyggð sem nú liggur fyrir Alþingi. Nokkrar umræður urðu um hvort það samræmdist samþykktum LLÍ að fjalla um málið. Niðurstaða stjórnarinnar var einróma sú að Landssamtökin myndu gefa umsögn um þingmálið og munu stjórnarmenn skoða frumvarpið og gera athugasemdir sem síðan verða samræmdar. Reynt verður að komast hjá lögfræðikostnaði í þessu sambandi.
3. Rætt var um framtal fyrir samtökin og að senda þarf launamiða vegna aksturs og dagpeninga vegna síðasta árs
Fleira ekki gert og fundi slitið
Óðinn Sigþórsson |
|

|