Fundargerð
8. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn miðvikudaginn 30. janúar 2008 í Bændahöllinni og hófst kl. 14:00.
Fundinn sátu: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður, Jóhannes Kristjánsson og Gunnar Sæmundsson. Ólafur H. Jónsson boðaði forföll vegna veikinda.
Dagskrá:
Fundargerð síðasta fundar.
Undirbúningur fyrir aðalfund LLÍ 14. febrúar.
Ársreikningur LLÍ fyrir árið 2007.
Breyting á Þjóðlendulögum.
Aðgerðaáætlun.
Greinargerð um stöðu mála í Þjóðlendumálum.
Önnur mál.
Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.
Undirbúningur fyrir aðalfund LLÍ 14. febrúar.
Farið var yfir dagskrá fundarins, en hún er þannig:
Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt samþykktum félagsins.
Staða þjóðlendumála í dag, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Afréttarmálefni fyrir dómstólum, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður.
Varðandi fyrsta lið, þá mun Guðný flytja skýrslu stjórnar. Gunnar Sæmundsson og Örn Bergsson verða fundarstjórar. Guðnýju var falið að fá góðan einstakling til að rita fundargerð.
Fram kom að Jóhannes mun ekki gefa kost á sér áfram til stjórnarsetu.
3. Ársreikningur LLÍ fyrir árið 2007.
Guðný lagði fram drög að ársreikning LLÍ fyrir árið 2007 í forföllum gjaldkera.
4. Breyting á Þjóðlendulögum.
Guðný fór yfir stöðu málsins. Þingmenn Framsóknarflokksins og sennilega einnig þingmenn Frjálslynda flokksins eru tilbúnir að leggja málið fram á Alþingi. Guðný mun fara til fundar við þessa þingmenn á næstu dögum til að fylgja málinu eftir. Þá var tekinn saman listi yfir þingmenn úr öðrum flokkum sem verður reynt að fá til að standa að málinu. Er hér um að ræða þingmenn sem voru búnir að láta mjög í veðri vaka fyrir síðustu kosningar að þörf væri á breytingum á lögunum. Stjórnarmenn voru sammála um að málið þyrfti að komast inn á Alþingi fyrir 10. febrúar nk.
5. Aðgerðaráætlun.
Rætt var um starfið framundan. Fram kom hjá Guðnýju að borist hefði ósk frá Rangarþingi um fund á því svæði. Eins hafa Austfirðingar rætt um fund.
Ákveðið var að stefna á skipuleg fundarhöld á vegum samtakanna eftir aðalfund. Rætt var um að halda fundi á eftirtöldum stöðum: Borgarnesi, Búðardal, Staðarflöt, Varmahlíð, Akureyri, Breiðumýri, Þórshöfn, Egilsstöðum og í Rangarvallasýslu. Tveir stjórnarmenn mæti á hvern fund. Fundarefni verði: Farið yfir stefnu og starfsemi samtakanna og það helsta sem hefur verið að gerast í þjóðlendumálum og hver staðan er í dag.
6. Greinargerð um stöðu mála í Þjóðlendumálum.
Stjórnarmenn fóru yfir stöðu mála. Beðið er Héraðsdóms um Esju. Þá var Erni falið að afla ýmissa frekari upplýsinga eftir því sem kostur væri.
7. Önnur mál.
Engin önnur mál.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið
Gunnar Sæmundsson |