Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð

7. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn þriðjudaginn 15. janúar 2008 og hófst kl. 16:00. Símafundur.

Þátttakendur voru: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður, Jóhannes Kristjánsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson.

Dagskrá:
      Fundargerð 6. fundar LLÍ.
      Staða verkefna.
      Bréf til Bændasamtaka Íslands og svar við því.
      Starfið framundan og aðalfundur LLÍ.
      Önnur mál.

Fundargerð 6. fundar LLÍ.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.

Staða verkefna:
Miklar umræður urðu um drög að tillögu að breytingu að lögum um þjóðlendur nr. 58/1998 og þau viðbrögð sem fengist hafa hjá þingmönnum við framlagningu og flutning málsins á Alþingi. Eftirfarandi kom fram: Framsóknarmenn og Frjálslyndir eru tilbúnir að flytja málið, Sjálfstæðismenn og Samfylkingarmenn gefa lítil svör. Ákveðið að leita frekar eftir svörum og fá þau á næstu dögum, fáist þau á annað borð, en málið þarf að komast inn á Alþingi ekki síðar en í byrjun febrúar.
Þá var farið yfir Yfirlitskort yfir þjóðlendur á svæðum 1. til 4. og skoðað hvaða jarðir og landsvæði þyrfti að fjalla sérstaklega um ef frumvarpið yrði að lögum.

Bréf til Bændasamtaka Íslands og svar við því.
Þann 11. desember sl. skrifaði formaður LLÍ bréf til BÍ og fór fram á styrk að upphæð kr. 1.000.000 til að aðstoða við að koma máli nokkurra bænda undir Eyjafjöllum til Mannréttindadómstóls Evrópu. Málið snertir afrétt þessara aðila, svokallaða Almenninga.
Framkvæmdastjóri BÍ svaraði bréfinu 13. des. sl. þar sem kemur fram að stjórn BÍ óskar eftir frekari rökstuðningi. Fram kom hjá formanni að Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur er að vinna að frekari rökstuðningi sem verður sendur BÍ á næstu dögum.

Starfið framundan og aðalfundur LLÍ.
Ákveðið var að stefna að því að aðalfundur LLÍ verði haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 14. febrúar nk. kl. 14:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verði reynt að fá eftirtalda aðila til að flytja erindi: Árna Mathíesen, fjármálaráðherra, Ragnar Aðalsteinsson, lögfræðing, og Ragnar Árnason, prófessor. Guðnýju og Ólafi H. var falið að undirbúa fundinn.
Stefnt er að því að fyrir aðalfund verði tilbúin starfsáætlun samtakanna fram á vorið.

Önnur mál.
Farið var yfir upplýsingar um að lögfræðingur fjármálaráðherra hafi farið fram á að svæði 7 verði skipt í tvo hluta og að Óbyggðanefnd hafi fallist á það.
Stefnt er á næsta stjórnarfund miðvikudaginn 30. janúar á Hótel Sögu í Reykjavík.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson