Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð

6. fundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn í Bændahöllinni þriðjudaginn 6. nóvember 2007 og hófst hann kl. 13:30.

Mættir voru: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður og Jóhannes Kristjánsson.

Dagskrá:

      Fundargerð 5. fundar
      Undirbúningur fyrir fundi með þingmönnum
      Fundir með þingmönnum
      Starfið framundan
      Önnur mál

1. Fundargerð 5. fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.

2. Undirbúningur fyrir fundi með þingmönnum.
Á síðasta stjórnarfundi 18. október sl. voru kynnt drög að tillögu að breytingu á lögum um þjóðlendur nr. 58/1998 fyrir þingmönnum úr öllum flokkum. Ákveðið var þá að hittast aftur í byrjun nóvember og þá yrðu þingmenn búnir að kynna sér drögin og kynna þau fyrir samflokksmönnum sínum og einnig að ákveða hvort þeir væru tilbúnir að flytja frumvarpið.

Formaður lagði fram tölvupóst frá Ólafi Björnssyni lögfræðingi um hvaða jörðum þyrfti að skila aftur til eigenda sinna ef lagabreytingin yrði að veruleika.

3. Fundir með þingmönnum.
Klukkan 14:00 var farið niður í Alþingishús og fundað með alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins þeim Ólöfu Nordal, Kjartani Ólafssyni og Árna Johnsen. Virtust drögin hafa lítið verið rædd innan þess flokks en lofað að þau yrðu tekin fyrir á þingflokksfundi daginn eftir.

Þá var næst gengið á fund þingmanna Frjálslyndaflokksins þeirra Kristins H. Gunnarssonar og Jóns Magnússonar. Tóku þeir stjórnarmönnum með opnum hug og ætluðu að fá lögfræðing á fund til sín í næstu viku.
Næst var farið á fund með Guðbjarti Hannessyni hjá Samfylkingunni. Þar á bæ voru ekki komin ákveðin svör hvort Samfylkingin legði blessun sína yfir drögin.

Því næst var farið upp í Bændahöll aftur og þar komu fulltrúar Framsóknarflokksins til fundar við stjórnina þau Guðni Ágústsson, Valgerður Sverrisdóttir og Magnús Stefánsson. Sýndu þau málinu áhuga og virtust vera sátt við drögin að mestu.

Var ákveðið að hafa samband við alla flokka innan tíu daga og þá þyrfti að vera ljóst hverjir væru tilbúnir að flytja frumvarpið.

Atli Gíslason hjá Vinstri grænum hafði ekki tök á að mæta en ákveðið að formaður og hann hittust næsta dag.

4. Starfið framundan.
Ákveðið að fá Atla Rúnar hjá Athygli til að vinna fyrir samtökin. Eins var rætt um að fá Ragnar Aðalsteinsson í lítilsháttar vinnu. Rætt um tímasetningu aðalfundar eftir áramótin og sérmál hans.

5. Önnur mál.
Engin önnur mál.

Guðný Sverrisdóttir ritaði fundargerð.