Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
5. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn í Bændahöllinni fimmtudaginn 18. október 2007 og hófst kl. 9:30.

Mætt voru: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður, Jóhannes Kristjánsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson.

Dagskrá:
    Fundargerð 4. fundar.
    Drög að tillögu um lagabreytingu.
    Undirbúningur fyrir fundi með þingmönnum.
    Starfið framundan.
    Önnur mál.
1.Fundargerð 4. fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.

2. Drög að tillögu um lagabreytingu.
Guðný greindi frá því að lögfræðingarnir, Ólafur Björnsson og Ragnar Aðalsteinsson hefðu samið drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Megininntak frumvarpsins er að sönnunarbyrðin verði hjá ríkinu en ekki hjá landeigendum eins og nú er. Þá er í frumvarpinu bráðabirgðaákvæði gagnvart þeim landsvæðum sem hafa haft ágreiningslaus, þinglýst landamerki og dæmd hafa verið þjóðlenda, um að þeim verði skilað til baka. (drögin fylgiskjal með fundargerð)
Guðný fór vandlega yfir málið. Stjórnarmenn lýstu ánægju sinni með vinnu lögfræðinganna.

3. Undirbúningur fyrir fundi með þingmönnum.
Guðný greindi frá því að nú færi stjórnin á fund með fjármálaráðherra kl. 10:00 og síðan væru fundir með þingmönnum einstakra stjórnmálaflokka um málið.
Stjórnarmenn ræddu stöðuna. Fram kom að Ragnar Aðalsteinsson hefði upplýst einstaka stjórnarmenn á fundi á liðnu hausti um dóm sem fallið hafði fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu um þinglýst eignarland í Tyrklandi. Dómurinn féll landeigenda í hag.
Þá var farið til fundar við fjármálaráðherra, Árna Mathíesen, í Fjármálaráðuneyti.
Farið var yfir málið með ráðherra og stöðu þjóðlendumála. Stjórnarmenn urðu fyrir vonbrigðum með svör ráðherra.
Þá var farið til fundar í Viðskiptaráðuneyti með þingmönnum Samfylkingar þeim, Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra, Kristjáni Möller samgönguráðherra og Guðbjarti Hannessyni alþingismanni. Voru þeim kynnt drögin að lagafrumvarpi og leitað eftir stuðningi þeirra við málið og aðild við að koma málinu inn á Alþingi. Málinn voru rædd og ákveðið að hittast aftur í byrjun nóvember.
Eftir þetta var farið aftur í Bændahöll og stjórnarmenn fóru yfir stöðuna og snæddu hádegisverð.
Um kl. 13:00 var farið niður í Alþingishús og rætt við Kristján Þór Júlíusson, alþingismann Sjálfstæðisflokksins, og honum afhent drögin og óskað eftir stuðningi hans. Hann kvaðst mundu skoða málið. Ákveðið að hittast í byrjun nóvember. Guðný var ekki með í þessari ferð vegna annarra starfa.
Enn var farið í Bændahöll. Guðný var nú komin aftur. Nú komu til fundar eftirtaldir alþingismenn Framsóknarflokksins: Guðni Ágústsson, Valgerður Sverrisdóttir, Magnús Stefánsson, Sif Friðleifsdóttir, Bjarni Harðarson og Höskuldur Þórhallsson. Voru þeim kynnt drögin og óskað eftir stuðningi þeirra við framgang málsins. Ákveðið að hittast aftur.
Því næst kom Árni Johnsen alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og á eftir honum Atli Gíslason alþingismaður Vinstri grænna. Báðum þessum alþingismönnum voru kynnt drögin og farið yfir stöðu mála. Ákveðið að halda næsta stjórnarfund aftur í byrjun nóvember. Ferð í Alþingishús til fundar við þingmenn Frjálslynda flokksins frestað aðeins.

4. Starfið framundan.
Rætt um að gera þyrfti áætlun um starfið framundan í vetur og ákveðið að leggja fram drög að því á stjórnarfundi í nóvember.

5. Önnur mál.
Ekki komu fram önnur mál.
Nú fóru Guðný, Örn og Jóhannes niður í Alþingishús til fundar við þingmenn Frjálslyndaflokksins:

    Fleira ekki fyrir tekið.
    Fundi slitið.
    Gunnar Sæmundsson