Fundargerð
4. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn í Bændahöllinni fimmtudaginn 14. júní og hófst kl. 9:30.
Mætt voru: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður, Jóhannes Kristjánsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson.
Dagskrá:
1. Fundargerð 3. fundar.
2. Farið yfir atburði frá síðasta fundi.
3. Fundur með fjármálaráðherra kl. 11,00.
4. Bréf frá stjórnmálaflokkunum.
5. Starfið framundan.
6. Uppgjör vegna vinnu stjórnar.
7. Fundur á Austurlandi.
8. Önnur mál.
1. Fundargerð 3. fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.
2. Farið yfir atburði frá síðasta fundi.
Guðný greindi frá því að til hefði staðið að Sigurður Líndal, prófessor, kæmi á fundinn, en af því gat ekki orðið vegna veikinda hjá Sigurði.
Þá var rætt um úrskurð Óbyggðanefndar á svæði 5 og lýstu allir stjórnarmenn yfir undrun og vonbrigðum með niðurstöðuna.
Einig var rætt um nýfallna dóma í þjóðlendumálum í Hæstarétti. Þar sneri m.a. Hæstiréttur í fyrsta sinn niðurstöðu Óbyggðanefndar landeigendum í hag og eru það ánægjuleg tíðindi.
Allir stjórnarmenn lýstu vonbrigðum sínum með bréf frá fjármálaráðherra frá 8. maí sl. Stjórnarmönnum fannst að ráðherra staðfesti þar ekki þau fyrirheit sem hann gaf stjórnarmönnum þann 23. apríl og fjallað er um í síðustu fundargerð.
Jóhannes taldi að ekki væri von á breyttum vinnubrögðum við kröfugerð og tóku aðrir stjórnarmenn undir það.
Rætt var um góða grein eftir Einar G. Pétursson sem birtist í síðasta Bændablaði. Samþykkt var að leita eftir heimild til að setja þessa grein á heimasíðu samtakanna.
3. Bréf frá stjórnmálaflokkunum.
Farið var yfir bréfin, en þau bárust flest rétt fyrir kosningar. Samþykkt að birta þau öll á heimasíðu samtakanna.
4. Fundur með Árna Mathíesen, fjármálaráðherra.
Stjórnin hélt niður í fjármálaráðuneyti til fundarins. Fram kom hjá ráðherra að dregið hefði verið úr upphaflegum kröfum á svæði 6. Ætti það frekast við í Kelduhverfi og á Tjörnesi. Ekki var tiltækt kort yfir þetta svæði, sem sýndi þetta, og því ekki hægt að átta sig nægjanlega vel á því hvað um væri að ræða.
Stjórnarmenn lýstu yfir vonbrigðum með svarbréf hans eins og áður er fram komið. Þá lýsti stjórn undrun sinni á því að ríkið skyldi áfrýja niðurstöðu Óbyggðanefndar um Esjuna. Fjármálaráðherra varði sín sjónarmið. Stjórnarmenn töldu að ekki yrði hjá því komist að breyta Þjóðlendulögum. Ráðherra hafnaði því. Óbyggðanefnd mun vera farin að afla gagna fyrir svæði 7. Ákveðið var að eiga annan fund með ráðherra á haustdögum
Í lok fundar með ráðherra varð Ólafur H. Jónsson að yfirgefa fundinn vegna anna.
5. Starfið framundan.
Ákveðið var að Guðný gengi eftir svörum og greinargerðum frá Sigurði Líndal prófessor og dr. Guðrúnu Gauksdóttur, en þessi gögn áttu í raun að vera komin.
Ákveðið var að reyna að fá Ragnar Aðalsteinsson lögfræðing til skrafs og ráðagerða og var þeim Erni og Guðnýju falið að undirbúa það. Sérstaklega skyldi þar m.a. hugað að vinnu við drög að breytingum á þjóðlendulögum og þá m.a. í þá veru að aldrei yrðu gerðar kröfur í lönd með ágreiningslaus landamerki og þinglýsingar þar um. Vinna þarf að því að fá alþingismenn til að flytja slíkt mál á haustþingi.
6. Uppgjör vegna vinnu stjórnar.
Rætt var um fjármál samtakanna. Þá var ákveðið eftirfarandi varðandi greiðslur til stjórnarmanna:
Greiddur verði útlagður kostnaður vegna ferða á fundi, s.s. flugfargjöld.
Greitt verði fyrir akstur á fundi samkv. taxta ríkisins, liður 2, eða kr. 62,50 á km.
Greiddir verði dagpeningar fyrir fundardaga.
Formaður fær greidda dagpeninga í tvo daga á mánuði vegna annarra ferða.
Ekki verði að svo stöddu greidd nein föst stjórnarlaun.
7. Fundur á Austurlandi.
Guðný greindi frá því að borist hefðu tilmæli um fund á Austurlandi. Yrði það Búnaðarsamband Austurlands sem stæði að fundinum. Ákveðið var að Guðný mundi mæta og eftir atvikum annar stjórnarmaður.
8. Önnur mál.
Gunnar sagði frá því að í gær (13. júní) sat hann aðalfund Búnaðarsambands Vestfjarða er haldinn var á Reykhólum og fjallaði hann þar um þjóðlendumálið. Þá kom fram að Bændasamtök Íslands hafa kostað allar ferðir á almenna fundi sem Gunnar hefur sótt til að fjalla um þjóðlendumálið á vegum samtakanna og mun gera eitthvað áfram. Er þetta styrkur BÍ til Landssamtakanna og kann stjórnin BÍ miklar þakkir fyrir. Guðný mætti á byggðaþing samtakanna Landsbyggðin lifi, á Hvanneyri þann 9. júní sl. og fjallaði um stöðu þjóðlendumála.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson. |