Fundargerð
3. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn í Bændahöllinni mánudaginn 23. apríl 2007 og hófst kl. 16.30
Mætt voru: Aðalstjórn; Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, varaformaður, Jóhannes Kristjánsson, Ólafur H. Jónsson og Gunnar Sæmundsson. Varastjórnarmenn höfðu verið boðaðir. Úr þeim hópi mætti Hrafnkell Karlsson.
Dagskrá:
1. Fundargerð 2. fundar.bg
2. Heimsókn til fjármálaráðherra.
3. Svör frá þingflokkum.
4. Álitsgerðir.
5. Styrkur við búnaðarsambönd.
6. Vinnan framundan.
7. Vinna hjá Athygli.
1. Fundargerð 2. fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.
2. Heimsókn til fjármálaráðherra.
Stjórnin að undanskildum Gunnari Sæmundssyni fór á fund fjármálaráðherra fyrr um daginn. Guðný fór yfir fundinn. Fram kom hjá fjármálaráðherra, Árna M. Mathiesen, að vinnulagi við kröfugerð ríkisins vegna þjóðlendulaga verði breytt. Rannsókn fari fram á undan kröfulýsingu ríkisins. Jafnframt yrði reynt að ná samkomulagi milli aðila.
Stjórnin ræddi málið og fagnaði þessari breytingu og taldi þetta tvímælalaust spor í rétta átt. Samþykkt var að formaður skrifaði ráðherra bréf og óskaði eftir skriflegri staðfestingu á því sem komið hafði fram af hans hálfu á fundinum.
3. Svör frá þingflokkum.
Formaður hafði ritað formönnum þingflokka bréf í byrjun aprílmánaðar. Í bréfinu var m.a. spurt ,,hvort þú og þinn flokkur hyggst beita þér fyrir breytingu á þjóðlendulögum á næsta þingi eða breytingu á verklagi við framkvæmd þjóðlendulaga?”
Aðeins hefur nú borist svar frá Guðjóni A. Kristjánssyni, f.h. Frjálslynda flokksins. Þar kemur m.a. fram, ,,að það er yfirlýst stefna Frjálslynda flokksins að virða beri þinglýstan eignarrétt landeigenda og landamerkjabréf. Einnig ber að virða eignarlönd, enda hefðu eigendur greitt af þeim skatta og skyldur til ríkis og sveitarfélags.”
Stjórnin þakkar svarið og fagnar áliti flokksins.
Ákveðið var að fela formanni að kanna hvort aðrir þingflokkar hyggist ekki að svara bréfi samtakanna.
4. Álitsgerðir.
Sigurður Líndal, prófessor mun væntanlega skila áliti sínu eftir um það bil viku.
Dr. Guðrún Gauksdóttir er enn að vinna að áliti sínu sem er nú ljóst að verður rannsóknar- og fræðiritgerð um málið. Nokkur dráttur getur orðið á því að ritgerðin liggi fyrir.
5. Styrkir við búnaðarsambönd.
Guðný greindi frá því að forsvarsmenn Búnaðarsamband Skagfirðinga hefðu leitað eftir því munnlega hvort samtökin væru tilbúin að styrkja búaðarsambandið vegna fundar um þjóðlendumálið sem haldinn var fyrir skömmu. Stjórnin samþykkti eftirfarandi:
Landsamtök landeigenda fagna því frumkvæði sem búnaðarsambönd hafa sýnt á síðustu vikum með því að boða til funda um þjóðlendumálin. Landsamtökin hafa lagt til frummælanda á þessa fundi og er það vel. Á það skal bent að samtökin eru nýstofnuð og því fjárhagslega veikburða. Þá eru samtökin að láta vinna lögfræðilegar álitsgerðir, standa fyrir í áróðri í fjölmiðlum ásamt því að halda uppi vörn fyrir landeigendur í aðdraganda alþingiskosninga. Allt þetta kostar allmikið fé. Því treysta samtökin sér ekki til að veita slíkan stuðning nú en benda á að hugsanlega gætu viðkomandi sveitarfélög komið að málinu.
6. Vinnan framundan og vinnan hjá Athygli.
Ákveðið var að þegar álitsgerðirnar kæmu frá Sigurði og Guðrúnu yrði efni úr þeim komið á framfæri sem víðast og leitað yrði til Athygli til að fylgja því eftir.
7. Önnur mál.
Guðný fór yfir það að hún, ásamt Ólafi Björnssyni lögfræðing og Gunnari Sæmundssyni, hefðu mætt á fundi um þjóðlendumálið. Á Blönduósi 20. mars sl., Löngumýri, Skagafirði 9. apríl kl. 13:00 og Akureyri 20:30 sama dag. Búnaðarsamböndin hafa staðið fyrir þessum fundum. Þessir fundir haf verði nokkuð vel sóttir og góðir.
Framundan væri fundur í Borgarnesi 26. apríl.
Gunnar hefur mætt á fund hjá Búnaðarfélagi Hvammsfjarðar í Dölum þann 23.mars sl. og á aðalfund Búnaðarsamtaka Vesturlands þann 29. mars sl.
Gengið var frá prókúruumboði fyri Ólaf H. Jónsson sem gjaldkera.
Ákveðið var að stefna á næsta stjórnarfund í júní.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson |