Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð

2. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) var haldinn í Bændahöllinni mánudaginn 26. febrúar 2006 og hófst kl. 17.

Mætt voru: Guðný Sverrisdóttir, formaður, Örn Bergsson, Jóhannes Kristjánsson og Gunnar Sæmundsson. Ólafur H. Jónsson var fjarverandi.

Dagskrá:
1. Fundargerð 1. fundar
2. Heimsóknir til fjármálaráðherra og þingflokka.
3. Gestir.
4. Breyting á verkaskiptingu stjórnar.
5. Prókúruumboð.
6. Lögfræðiálit.
7. Önnur mál.

1. Fundargerð 1. fundar.
Fundargerðin samþykkt athugasemdalaust.

2. Heimsóknir til fjármálaráherra og þingflokka.
Guðný gerði grein fyrir því helsta sem gerst hefur frá síðasta stjórnarfundi. Hluti stjórnar hafði farið á fund fjármálaráðherra, Árna Mathiesen. Fjármálaráðherra tók ekki undir sjónarmið samtakanna um að breyta þyrfti lögum um þjóðlendur. Taldi það tæpast framkvæmanlegt. Ráðherra reifaði lauslega hugmyndir um breytt verklag við kröfugerð ríkisins í land.
Guðný fór yfir heimsóknir til stjórnmálaflokkanna og hver viðbrögð þeirra hefðu verið sem voru nokkuð misjöfn.

3. Gestir.
Til fundarins komu þeir Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, og Bjarni Harðarson, blaðamaður og frambjóðandi. Málin voru rædd við þá og mörgum möguleikum velt upp til að koma hreyfingu á kröfugerð um að breyta lögum. Fram kom hjá Birki að flestir þingmenn Framsóknarflokksins vilja breyta þeirri stefnu sem uppi hefur verið í kröfugerð af hálfu ríkisvaldsins. Ljóst sé að samstarfsflokkurinn hefur ekki áhuga á slíku. Framundan er flokksþing Framsóknarflokksins sem verður haldið dagana 2. og 3. mars nk. Vitað er að þjóðlendumálið verður rætt þar. Stjórnin var sammála um nauðsyn þess að kom málstað samtakanna þar inn með öllum ráðum. Þá gat Birkir þess að til stæðu viðræður milli einstakra ráðherra um þetta mál, væntanlega á morgun. Stjórnin var sammála um nauðsyn þess að fá greinargóðar fréttir af slíkum viðræðum. og meta síðan stöðuna með tilliti til þeirrar niðurstöðu.

4. Breyting á verkaskiptinu stjórnar.
Upp kom sú hugmynd að víxla störfum milli Gunnars Sæmundssonar og Ólafs H. Jónssonar, þannig að Ólafur verði gjaldkeri og Gunnar ritari. Þetta var talið hagkvæmara vegna þess að Ólafur er í Reykjavík og þannig betur staðsettur sem gjaldkeri. Guðnýju falið að ræða við Ólaf sem fyrst um málið


5. Prókúruumboð.
Samþykkt var að veita Guðnýju prókúruumboð fyrir samtökin og síðar einnig Ólafi H. Jónssyni, samþykki hann að verða gjaldkeri. Stjórnarmenn undirrituðu tilskilin gögn um málið.

6. Lögfræðiálit.
Guðný upplýsti að dr. Guðrún Gauksdóttir sé tilbúin að vinna álitsgerð um eignarrétt á jörðum, landi og landeignum. Kostnaður gæti orðið um 100 þús. kr. + vsk. Samþykkt að láta gera álitsgerðina.
Þá hefur Guðný verið í sambandi við Sigurð Líndal, prófessor til að fá hann til að vinna álitsgerð varðandi réttarstöðu og lagalega möguleika á því að breyta þjóðlendulögum. Sigurður er að hugsa málið og mun svara innan skamms.

7. Önnur mál.
a) Guðný mun á morgun vera hjá Bændasamtökunum til undirbúa heimasíðu samtakanna.
b) Rætt var um nauðsyn þess að virkja varamenn í stjórn. Upp kom sú hugmynd að fá varamenn á næsta stjórnarfund. Var samþykkt að stefna að því.
c) Mikið var rætt um átak til að koma málstað samtakanna sem best á framfæri á næstu vikum, ekki síst með hliðsjón að því að Alþingiskosningar eru á komandi vori. Upp kom hugmynd um fundarherferð um landið. Gunnari falið að undirbúa málið og leggja fram frekari hugmyndir á næsta stjórnarfundi.

Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson,
Fundarritari.