Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
32. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ)
var haldinn þriðjudaginn 1. nóvember 2011
á Hótel Sögu og hófst kl. 11:00.



Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Sigurður Jónsson, Gunnar Sæmundsson, Óðinn Sigþórsson og Guðný Sverrisdóttir. Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.

Dagskrá:
      1. Fundur með vegamálastjóra og mönnum hans kl.11.00.
      2. Fundargerð síðasta fundar.
      3. Breytingar á þjóðlendulögum – endurupptökuákvæði.
      4. Heimasíðan.
      5. Ný landgræðslulög.
      6. Aðalfundur fyrir 2011.
      7. Úrskurður óbyggðanefndar á Tröllaskaga.
      8. Önnur mál.
    1. Fundur með vegamálastjóra og mönnum hans.
      Stjórnin fór til fundar við vegamálastjóra, Hrein Haraldsson, Gunnar Gunnarsson,
    aðstoðarvegamálastjóra og Stefán Erlendsson, lögfræðingur. Fundurinn var haldin í höfuðstöðvum Vegagerðarinar við Boragartún.
    Stjórnin hafði óskað eftir þessum fundi til að ræða samskipti Vegagerðarinar og landeigenda. Þau mál sem rædd voru, voru m.a. ákvæði í gildandi vegalögum um að Vegagerðin sé lögformlegur eigandi að því landi sem undir veg fer. Þessi breyting er að mati stjórnar LLÍ, óheppileg og vekur margar spurningar og álitaefni. Slík landsvæði eru komin með sérstök fasteignanúmer. Stjórn LLÍ telur að eigi þetta fyrirkomulag að vera til frambúðar þurfi að skýra réttarfarslega stöðu viðkomandi landsvæða og hvaða áhrif það hafi á þær jarðir sem áður áttu landið og hvað gerist ef vegi er svo breytt síðar.
    Rætt var um bætur fyrir land sem fer undir vegsvæði, efnistöku o.fl. Eignarnám og hvort ekki væri rétt að auðvelda þann feril, þannig að hægt væri að skjóta málum fyrr til úrskurðar, til þess að fá hlutlaust mat ef samkomulag næst ekki á milli Vegagerðar og landeigenda.
    Skorað var á forustumenn Vegagerðarinar að hafa samráð við landeigendur með góðum fyrirvara, þegar framkvæmdir eru fyrihugaðar, en landeigendur upplifi ekki að það sé eins og þeir séu sniðgengnir.
    Vegagerðarmenn tóku vel í að senda LLÍ, yfirfarnar verklagsregur sína um samskipti við landeigendur til umsagnar.

    2. Fundargerð síðasta fundar.
    Fundi var framhaldið í Bændahöll kl. 13.00
Fundargerðin hafði verið send viðkomandi, engar athugasemdir höfðu borist og var hún því samþykkt.
    3. Breytingar á Þjóðlendulögum, endurupptökuákvæði.
Þetta mál hefur nokkuð oft borið á góma á stjórnarfundum. Samþykkt var að fela Sigurði að semja uppkast að slíku frumvarpi, þannig að leggja megi fyrir þingmenn mótaðar hugmyndir. Samþykkt að Sigurði yrði greitt fyrir þessa vinnu.
    4. Heimasíðan.
Guðný hefur verið í sambandi við Höllu Tinnu. Samþykkt var að fela henni að endurskipuleggja heimasíðu samtakanna samkvæmt þeim hugmyndum sem hún hefur lagt fram. Stjórnarmenn voru ánægðir með þær. Þá var samþykkt að Halla Tinna fengi greitt sem svarar 6 klst. vinnu á mánuði fyrir að uppfæra síðuna.
    5. Ný landgræðslulög.
Formaður hefur fengið fréttir um að nú sé hafin vinna við ný landgræðslulög. Ekki hefur verið leitað til LLÍ vegna þeirrar vinnu. Stjórnarmenn voru sammála um að með þessu verði að fylgjast.
    6. Aðalfundur fyrir árið 2011.
Ákveðið var að stefna á fimmtudaginn 16. febrúar 2012. Nokkuð var rætt um hvaða mál ætti að gera að aðalmáli fundarins. Ákvörðun um það frestað, en stjórnarmenn beðnir að íhuga málið.
    7. Úrskurður óbyggðanefndar á Tröllaskaga.
Stjórnarmenn lýstu vonbrigðum sínum með úrskurðinn. Það sem vekur enn og aftur undrun er þegar mjög afmarkaðar landspildur eru gerðar að þjóðlendum. Tæpast verðu talið að þetta samrýmist upphaflegum markmiðum laganna og eins og þau voru kynnt í upphafi.

    8. Önnur mál.
Formaður kynnti bréf frá Landeigendafélagi Álftanes, þar sem sótt er um fjárstuðning vegna málaferla fyrir Mannréttindadómstólinum. Samþykkt var að veita þeim kr. 300.000. Styrkurinn verði greiddur þegar málið hefur verið lagt fyrir dóminn.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson.