Fundargerð
30. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ)
var haldinn miðvikudaginn 22. júní 2011.
Mættir voru stjórnarmenn utan þess að Gunnar Sæmundsson boðaði forföll og sata varamaður hans, Jóhann Ragnarsson Laxárdal, fundinn.
Formaður Örn Bergsson setti fund og Óðinn Sigþórsson ritar fundargerð í fjarveru ritara.
Fundargerð síðasta fundar samþykkt án athugasemda.
Dagskrá:
1. Jarðalög
2. Heimasíða
3. Endurskoðun á lögum um landgræðslu
4. Bréf frá umhverfisráðuneyti
5. Staða þjóðlendumála
6. Önnur mál
1 Jarðalög. Landssamtökin hafa sent umsögn um drög að breyttum jarðalögum til sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis þar sem lagst er gegn þeirri meginstefnu sem birtist í drögum að frumvarpi til nýrra jarðalaga sem liggja frammi til kynningar. Nokkrar umræður urðu um drögin og töldu fundarmenn hættu á að jarðir falli í verði komist þau til framkvæmda. Voru stjórnarmenn einhuga um að landssamtökin taki virkan þátt í umræðunni komi frumvarp fram á Alþingi til breytinga á jarðalögum á grundvelli þeirra hugmynda sem nú liggja fyrir. Fram kom á fundinum að Samtök sveitarfélaga leggjast í umsögn sinni gegn frumvarpsdrögunum. Voru stjórnarmenn á einu máli um að allt of víðtækar skyldur eru lagðar á sveitarfélög í þeim drögum sem nú liggja fyrir.
2 Heimasíða Landssamtaka landeiganda hefur ekki verið haldið við sem skyldi. Samþykkt var að leita til Höllu Tinnu Arnardóttur um að hafa umsjón með síðunni. Sigurði og Guðnýu var falið að ræða við Höllu.
3 Lagt fram bréf frá umhverfisráðuneyti vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar á lögum um landgræðslu. Ráðuneytið gerir ráð fyrir samráðsferli við hagsmunaaðila við endurskoðun laganna og er í bréfinu óskað eftir skriflegum svörum við 6 spurningum sem fylgdu með. Samþykkt var að óska eftir viðræðum við nefnd þá sem fer með málið og koma þannig sjónarmiðum landeigenda á framfæri.
4 Lagt fram bréf frá umhverfisráðuneyti þar sem óskað var eftir umsögn og athugasemdum um reglugerðardrög um framkvæmdaleyfi sem með fylgdu. Samþykkt að stjórnarmenn færu yfir drögin og sendu athugasemdir til formanns sem síðan komi þeim til ráðuneytisins.
5 Nokkur umræða varð um stöðu þjóðlendumála. Voru stjórnarmenn sammála um að Landssamtökin þurfi að halda vöku sinni þótt lítið hafi farið fyrir þessum málaflokki eftir að ríkisstjórnin ákvað að fresta vinnu við nýja kröfugerð þar til á þessu ári. Sigurður lagði fram hugmynd um að óska eftir því við Óbyggðanefnd að þeir standi fyrir málþingi um stöðu og framkvæmd þjóðlendulaganna á þeim svæðum sem eftir eru. Rædd var nauðsyn þess að bæta upplýsingar um þjóðlendumálin á heimasíðu samtakanna.
6 Önnur mál. Sigurður gerði grein fyrir fundi sem hann sótti og haldinn var á vegum Umhverfisstofnunar um friðlýsingu svæða.
|