Forsíða
Fréttir
Stjórn
- Fundargerðir
Eyðublöð
Samþykktir
- Árgjald
Greinar og lög
Óbyggðanefnd
- Úrskurðir
- Svæði til meðferðar
Myndir
Tenglar
 
Hafa samband
Skrá mig í samtökin!
 

Fundargerð
27. stjórnarfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ)
var haldinn fimmtudaginn 17. febrúar 2011
á Hótel Sögu og hófst kl. 11:15.



Fundinn sátu: Örn Bergsson, formaður, Sigurður Jónsson, Gunnar Sæmundsson, Óðinn Sigþórsson og Guðný Sverrisdóttir. Formaður stjórnaði fundi, Gunnar ritaði fundargerð.

Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar.
2. Undirbúningur aðalfundar.
3. Önnur mál.


1. Fundargerðs síðasta fundar.
Fundargerðin hafði verið send og engar athugasemdir borist og var hún samþykkt.

2. Undirbúningur aðalfundar.
Aðalfundur samtakanna verður haldinn á Hótel Sögu og hefst kl. 14:00. Guðný verður fundarstjóri og Óðinn henni til aðstoðar. Tjörvi Bjarnason mun rita fundargerð. Guðný lagði fram og kynnti ársreikning samtakanna fyrir árið 2010, áritaðan af skoðunarmönnum. Stjórn undirritaði reikningana. Stjórnin samþykkti að gera tillögu til aðalfundar um óbreytt árgjald fyrir árið 2011. Þá var rætt um málþingið um þjóðareign, sem haldið verður að loknum aðalfundi.

3. Önnur mál.
Rætt var um Heiðarmúlamálið, í framhaldi af umræðum á síðasta stjórnarfundi. Fyrir liggur beiðni frá lögmönnum þeim, sem komu á síðasta fund, um að samtökin leggi fram fjármuni til að standa straum af kostnaði við að fara með málið fyrir Mannréttindadómstólinn. Kostnaður gæti numið allt að tveimur milljónum króna. Stjórnin telur ekki koma til greina að samtökin eigi beina aðild að málinu, en er tilbúin að veita landeigenda styrk að upphæð 500 þús. kr. verði farið með málið áfram.
Þá var nokkuð rætt um að samtökin veittu fjármuni til að kosta leit að skjölum sem leynast kunna í skjalasöfnum í Kaupmannahöfn og í Árnastofnun. Ákveðið var að hugsa málið og ræða betur á næsta fundi.




Fleira ekki fyrir tekið.
Fundi slitið.
Gunnar Sæmundsson.